Sigmar "missti sig" aðeins
23.10.2008 | 12:14
Það er mikið talað um það að stjórnvöld þurfi að upplýsa okkur borgarana um gang mála á hverjum tíma. Við viljum helst vita stöðuna hverja klukkustund hvern dag. Á sama tíma viljum við finna sökudólga og „kasta grjóti“ í hvern þann sem fellur í þann flokk manna sem við teljum að beri hér ábyrgð. Mörg okkar tókum að vísu nokkurn þátt í „veislunni“ á einn eða annan hátt. Ég horfði t.d. á Geir og Sigmar ræða saman í 38“ flatskjá upp á vegg. Var ég þá aðeins að „missa mig“ eða hvað?
Ég vona sannarlega að nú verði regluverkið endurskoðað og þar með ákvæði EES samningsins um óheft viðskipti á þann hátt að bankarnir okkar „missi sig“ ekki aftur svo ég „missi mig“ ekki aftur svo Sigmar "missi sig" ekki aftur.
![]() |
RÚV sagt kynda undir sleggjudómum og ofstæki |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.