Ofbeldi í skjóli lögreglubifreiðar
19.11.2010 | 18:25
Ég hef áreiðanlegar heimildir fyrir þvi að lögreglubifreiðar séu notaðar til að varna því að vegfarendur sjái hrottabrögð lögreglumanna. Hegðun lögreglumanna gagnvart fólki gjörbreytist þegar inn í bílinn er komið og dyrum lokað þannig að meðferðin á "viðfangsefninu" verður ógeðsleg og úr öllu samhengi við það sem sæmilegt má telja enda sér engin til vinnubragðanna nema lögreglan sjálf. Ég hef séð ógeðslegar myndir af áverkum á fólki eftir slíka meðferð og veit að þær myndir eru til.
Til að koma í veg fyrir staðlausar fullyrðingar af þessu tagi mætti setja eftirlitsmyndavélar í lögreglubifreiðar þannig að það sem gerist innan þeirra njóti ekki nokkurs vafa.
Engar forsendur til brottvikningar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Já, rosalega er þetta góð hugmynd að setja myndavélar í alla löggubíla. Þá hafa lögregluyfirvöld líka pottþétt vitni að fyrirmyndarframkomu eigin manna. Þetta er ódýr lausn og ef lögreglan er með einhvern metnað og vill byggja upp góða ímynd þá er þessi hugmynd gulls ígildi.
Nú ætti einhver að koma á fót feisbúkk síðu til að safna undirskriftum til að koma þessu á.
Jón Ármann Steinsson, 19.11.2010 kl. 18:59
Fullyrðingar GG eru vægast sagt ekki í lagi - að setja svona fram skv. "áreiðanlegum... er lélegt - Ef þessar heimildir eru svona öruggar hlýtur að hafa verið kært í því tilviki. Ekki bera myndavélaskort fyrir sig - ef þessar fullyrðingar eru réttar hefur væntanlega stórséð á viðkomandi aðila og hann fluttur á sjúkrahús.. Þú ættir að fara varlega í að bera svona sakir á lögregluna. Myndavélar ??? Ef það stangast ekki á við persónuvernd ( athugið að sá eða sú sem er færður/færð í bifreiðina er þá líka í mynd ) hvernig væri þá - í stað þess að efna til undirskriftarsöfnunar að þið efnið til fjársöafnunar til kaupa á slíkum vélum Lögreglan er í öskrandi niðurskurði á sama tíma og verkefnin aukast.
Ekki vil ég skipta á myndavélum annarsvegar og viðveru lögreglumanna hinsvegar.
Ólafur Ingi Hrólfsson, 20.11.2010 kl. 08:20
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.